Skólanum skellt í lás vegna smita

Dalvík.
Dalvík. mbl.is/Sigurður Bogi

Skólahald fellur niður í Dalvíkurskóla í dag, mánudag og þriðjudag að minnsta kosti vegna fjölda smita í bænum og hve margir þar tengjast hópsýkingu sem kominn er upp.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum á Facebook.

Þar segir að staðan verði tekin þegar búið er að skima aftur þá sem nú eru í sóttkví.

Í gærkvöldi hafði á þriðja tug íbúa Dalvíkur greinst smitaður af kórónuveirunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert