Ilmkertin góð fyrir sálina

„Ég sá að þetta var ekki eins auðvelt og ég …
„Ég sá að þetta var ekki eins auðvelt og ég hélt. Ég fór því að gúgla og þá opnaðist mér nýr heimur. Ég byrjaði á því að panta mér bækur og las mikið og komst að því að þetta er blanda af vísindum og list,“ segir Jóhanna Guðmundsdóttir sem er fallin fyrir kertagerð. mbl.is/Ásdís

Það er indælis ilmur í loftinu í kringum Jóhönnu Guðmundsdóttur, enda er borðið hlaðið ilmkertum sem hún hefur þróað og hannað. 

„Ég byrjaði fyrst að vinna við förðun sem ég hafði lært í Frakklandi og vann við það í fimm ár. Ég ferðaðist mikið um allt Karíbahaf og farðaði módel fyrir tískuljósmyndir,“ segir Jóhanna sem búið hefur í Miami í áratugi.  

„Ég fékk þá vinnu í Bath & Body Works og sá þar um nýtt svæði þar sem til sölu var algjör nýjung á þessum tíma, og það voru ilmkerti,“ segir Jóhanna og segist á þeim tíma ekki hafa haft mikið vit á ilmkertum. Það átti sannarlega eftir að breytast.

Besta afmælisgjöfin

„Ég hef alltaf verið ofsalega hrifin af góðum kertum og ef ég gef gjafir gef ég gjarnan góð ilmkerti sem mér finnst næra sálina svo vel. Svo þegar Covid skall á í fyrra fór ég að grúska á netinu og lesa mér til um kerti. Ég var búin að kaupa slatta af kertum og langaði að gera eitthvað með þetta en vissi ekki alveg hvað. Svo á afmælinu mínu í ágúst í fyrra fórum við út að borða, í fyrsta sinn í faraldrinum, og þegar við komum heim beið mín nokkuð óvænt. Það var búið að skreyta borðstofuborðið með alls konar kertaföndri; körfum með vaxi, glösum, blöðrum og kveikjum. Ég spurði bara: Hvað er þetta? Jón, maðurinn minn, og yngri sonur minn sögðu þá að ég ætti nú að fara að búa til mín eigin kerti,“ segir hún og segist að vonum hafa orðið yfir sig glöð.

„Þetta var skemmtilegasta afmælisgjöf sem ég hef fengið!“

Misvel heppnaðar tilraunir

Daginn eftir byrjaði Jóhanna að fikta við að blanda saman efnum og reyna að búa til kerti.

„Þetta var hörmung. Það tókst ekki og það var engin lykt og það slokknaði alltaf á kveikjunum. Ég sá að þetta var ekki eins auðvelt og ég hélt. Ég fór því að gúgla og þá opnaðist mér nýr heimur. Ég byrjaði á því að panta mér bækur og las mikið og komst að því að þetta er blanda af vísindum og list,“ segir Jóhanna, sem lagðist í mikla vinnu við kertagerð.

„Núna í rúmt ár hefur heimili mitt verið undirlagt af þessu en ég hef alla daga allan daginn verið að prófa mig áfram með vax, kveiki og ilmolíur. Mér finnst þetta svo dásamlegt! Ég er endalaust að finna góða lykt og er að athuga hvernig mismunandi lykt lætur mér líða. Ég var þá, öllum þessum árum eftir að ég vann í kertadeildinni, að skilja hvernig þessir ilmir hafa áhrif á okkur,“ segir Jóhanna og segist hafa lagst í mikla rannsóknarvinnu því hún vildi eingöngu vinna með náttúruleg efni en oft eru óæskileg efni í bæði vaxi og ilmolíum.

„Ég er þrisvar næstum búin að kveikja í húsinu. Eitt skiptið spurði ég son minn hvort honum fyndist ekki lyktin góð af ilmolíunni sem ég var að hita, en hann svaraði að hann fyndi nú bara brunalykt. Ég svaraði „æ, hvað þú ert leiðinlegur“ en leit svo við og sá bara eld! Það er gott að hann er slökkviliðsmaður,“ segir hún og brosir.

Kertin eru í smart dósum og er krummi þar áberandi …
Kertin eru í smart dósum og er krummi þar áberandi í lógóinu. mbl.is/Ásdís

Kertin búin til heima

Eftir allt grúskið, fiktið og tilraunir sem sumar heppnuðust og aðrar ekki var Jóhanna orðin sérfræðingur í kertagerð og nú var mál að finna viðskiptahugmynd sem gæti virkað. Þá kviknaði sú hugmynd að í stað þess að selja tilbúin kerti, að selja kassa með bestu fáanlegu hráefnum til kertagerðar. Jóhanna vildi leyfa fólki að njóta þess að búa til sín eigin hágæðailmkerti þar sem það er svo skemmtilegt. Nú er varan tilbúin en öll hráefni til kertagerðarinnar eru í smart litlum pappakassa og fyrirtækið By Krummi var stofnað, en varan gengur undir nafninu Reykjavík Candle Co. Frænka Jóhönnu, Sigrún Ýr Hjörleifsdóttir, hefur verið hennar hægri hönd og séð um hönnun og útfærslu á vörunni með henni.
„Ég hef leyft nokkrum að prófa að föndra kerti úr krummakassanum og öllum finnst þetta mjög gaman. Þetta er skemmtilegt og gefandi föndur,“ segir Jóhanna og leyfir blaðamanni að finna ilminn af heimatilbúnu kerti.

Í kössunum er allt til kertagerðar.
Í kössunum er allt til kertagerðar. mbl.is/Ásdís

„Draumurinn er að vera með lítið kertastúdíó, halda námskeið og vera með línu af kertum og öðrum vörum, en í dag eru krummakassarnir eingöngu seldir á Íslandi í takmörkuðu upplagi á vefsíðunni bykrummi.is.“

Nánar er rætt við Jóhönnu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert