63 verkefni hljóta styrk

Gróska hugmyndahús er heimili fjölda fyrirtækja í nýsköpun.
Gróska hugmyndahús er heimili fjölda fyrirtækja í nýsköpun. mbl.is/Sigurður Ragnarsson

Haustúthlutun Tækniþróunarsjóðs fyrir árið 2021 fór fram í dag og hefur stjórn sjóðsins samþykkt að bjóða 63 verkefnum styrk. Þetta segir í tilkynningu frá Rannís.

Styrktarflokkarnir sem um ræðir eru fjórir talsins og bera nöfnin Fræ/Þróunarfræ, Sproti, Vöxtur en auk þess er veitur sérstakur markaðsstyrkur.

Í haustúhlutuninni er styrkveiting til nýrra verkefna alls 747 milljónir króna en þar sem verkefnin eru til allt að tveggja ára nemur heildarkostnaður þeirra um 1.347 króna, að því er segir í tilkynningunni.

Næsti umsóknarfrestur um fyrirtækjastyrki verður 15. mars á næsta ári og verður tilkynnt um úthlutun úr þeim um mánaðarmótin hálfum mánuði síðar.

Hlutverk Tækniþróunarsjóðs er að styðja við rannsóknir og þróunarstarf sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi en hann er opinn fyrir nýsköpunarverkefnum úr öllum atvinnugreinum.

Nánar um Tækniþróunarsjóð og haustúthlutunina má finna á heimasíðu Rannís hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert