Gengst við broti og biður Jódísi afsökunar

Hörður Oddfríðarson.
Hörður Oddfríðarson. Ljósmynd/ Friðrik Tryggvason

Hörður J. Oddfríðarson stjórnarmaður SÁÁ hefur beðið Jódísi Skúladóttur þingmann Vinstri-grænna afsökunar á atviki sem átti sér stað þegar hún var sautján ára og Hörður þrítugur. 

Í færslu sinni á Facebook sakar Jódís Hörð um að hafa misnotað stöðu sína og m.a. káfað á henni. Þremur árum síðar tók Hörður á móti henni í eftirmeðferð á vegum samtakanna. 

Hörður segir í yfirlýsingu sinni að skömmu eftir atvikið sem Jódís lýsir hafi hann sjálfur farið í meðferð og hafið störf hjá samtökunum skömmu síðar. 

„Ég rengi ekki frásögn Jódísar á nokkurn hátt og bið hana afsökunar á því sem gerðist og þeim afleiðingum sem það hefur haft fyrir hana,“ segir Hörður í yfirlýsingunni. 

Hann segist enn fremur eiga í samræðum við yfirmenn sína hjá SÁÁ um framtíð sína hjá samtökunum og hefur hann óskað eftir því að úttekt verði gerð á störfum hans þar síðastliðin 25 ár. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert