Björgunarsveitir á leið upp á Vatnajökul

Björgunarsveitarmenn að störfum.
Björgunarsveitarmenn að störfum. mbl.is/Óttar

Fimmtíu björgunarsveitarmenn frá níu björgunarsveitum eru á leið upp á Vatnajökul vegna neyðarkalls sem barst frá neyðarsendi í gærkvöldi.

Björgunarsveitir allt frá höfuðborgarsvæðinu til austfjarða voru boðaðar í ljósi þess hvaðan neyðarboðin koma, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg.

Útkallið barst á fjórða tímanum í nótt. Aðstæður á svæðinu eru erfiðar, mikil veðurhæð og mjög takmarkað skyggni á köflum. Enn er unnið að því að komast á staðinn þaðan sem neyðarsendingin kom en vonir standa til að það takist á næstu klukkutímum.

Fjöldinn allur af sérhæfðum tækjum og sjálfboðaliðum sækir því á jökulinn úr öllum áttum á vélsleðum, breyttum jeppum og snjóbílum. Svæðisstjórnir á svæði 1-13-15 skipuleggja aðgerðir björgunarsveita.

Unnið er út frá staðsetningu sendingar neyðarsendis og ferðaáætlunar sem skráð var hjá Safetravel.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert