Loka fyrir umferð á Suðurlandi

Lítið sem ekkert skyggni er á svæðinu.
Lítið sem ekkert skyggni er á svæðinu. mbl.is/Jónas Erlendsson

Búið er að loka fyrir umferð um Þjóðveginn á Suðurlandi. Lokunin nær frá Skógum undir Eyjafjöllum að Vík í Mýrdal.

Slæmt skyggni er á svæðinu og munu appelsínugular veðurviðvaranir taka gildi í kvöld. Vindhviður hafa mælst á 32 metrum á sekúndu við Hvamm undir Eyjafjöllum. 

Starfsmaður Vegagerðarinnar segir í samtali við mbl.is að bílar hefðu verið að lenda í vandræðum á svæðinu. Því var ákveðið að loka fyrir umferð.

Ekki er vitað hvenær vegurinn opnar aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert