Vegir víða lokaðir eða ófærir

Frá Hellisheiði.
Frá Hellisheiði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mikið er um að vegir séu lokaðir eða ófærir víða um land í dag vegna óveðursins.

Vegirnir um Hellisheiði og Þrengsli eru báðir lokaðir vegna ófærðar. Nánari upplýsingar verða veittar um hádegisbilið, að því er kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Vegirnir um Bröttubrekku og Holtavörðuheiði eru einnig lokaðir og verða næstu upplýsingar veittar vegna þeirra klukkan 16 í dag.

Mosfellsheiði er einnig lokuð, sem og Öxnadalsheiði.

Krapi og mjög hvasst er á Grindavíkurvegi og á Reykjanesbraut, en hálkublettir eru á Kjalarnesi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert