Reykjavík lýst upp í úkraínsku fánalitunum

Ráðhúsið í úkraínsku fánalitunum.
Ráðhúsið í úkraínsku fánalitunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ráðhús Reykjavíkur, utanríkisráðuneytið og Harpan voru lýst upp í úkraínsku fánalitunum í gærkvöldi, til stuðnings Úkraínu í kjölfar innrásar Rússlands. 

Slíkt hið sama hefur verið gert víða um heim síðustu daga, á kennileitum á borð við Brandenborgarhliðið í Berlínarborg og Kólóseumið í Róm.

Þá hafa ýmsar byggingar alþjóðastofnana á borð við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins verið lýstar upp í fánalitunum. 

Harpan í úkraínsku fánalitunum.
Harpan í úkraínsku fánalitunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Utanríkisráðuneytið í úkraínsku fánalitunum.
Utanríkisráðuneytið í úkraínsku fánalitunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert