„Afar særandi ummæli látin falla“

Vigdís Häsler Sveinsdóttir.
Vigdís Häsler Sveinsdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Aldrei hélt ég að ég þyrfti að setjast niður og skrifa svona yfirlýsingu. Ég hef aldrei látið húðlit, kynþátt, kynferði eða annað skilgreina mig. Ég hef alltaf talið að verk mín og gjörðir töluðu fyrir sig sjálf, en núna tel ég mig knúna til að tjá mig um það sem gerðist,“ skrifar Vigdís Häsler framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, á facebook-síðu sína.

Ástæða skrifanna eru niðrandi ummæli sem Vigdís segir að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins og innviðaráðherra, hafi látið falla um sig á flokkaþingi í tengslum við Búnaðarþing síðastliðinn fimmtudag.

Starfsfólk Bændasamtakanna óskaði eftir því að innviðaráðherra og fleiri væru með í myndatöku sem ég kom síðar að. Þar voru afar særandi ummæli látin falla og heyrði bæði ég það sem og starfsfólk samtakanna,“ skrifar Vigdís.

Fjallað var um ummælin á vef Fréttablaðsins þar sem Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður Sigurðar Inga, sagði hann ekki hafa notað slík orð og að hún hefði staðið við hlið hans.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Aðstoðarmaður ráðherrans var ekki við hlið hans þegar ummælin voru látin falla, eins og hún hefur haldið fram en myndir úr þessari myndatöku sýna það án alls vafa. Það er særandi þegar reynt er að gera lítið úr upplifun minni og þegar beinlínis rangar skýringar eru notaðar við það. Ég stend með sjálfri mér þegar kemur að þessu, ég veit hvað ég heyrði, ég veit hvað var sagt. Ég neita að bera ábyrgð á þeim orðum sem ráðherrann viðhafði í minn garð. Duldir fordómar eru gríðarlegt samfélagsmein og grassera á öllum stigum samfélagsins. Þeir smætta verk einstaklinga og gjörðir niður í lit eða kyn,“ skrifar Vigdís.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert