Allt að 15 stiga hiti

Það verður huggulegt veður á Akureyri í dag.
Það verður huggulegt veður á Akureyri í dag. mbl.is/Sigurður Bogi

Sumardagurinn fyrsti er runninn upp og aldrei þessu vant lítur vel út með veðrið á öllu landinu.“ Þetta segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Spár gera ráð fyrir austlægri átt og 3-8 m/s. Víða léttskýjað á norðanverðu landinu, en smá væta sunnanlands og einnig vestantil í kvöld. Líkur á þokulofti við austurströndina.

Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðantil.

Útlit er fyrir áframhaldandi áframhaldandi blíðviðri um helgina, en í næstu viku spáð lækkandi hita og aukinni vætu.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert