Ríkisstyrkir vegna úrræða fyrir börn á flótta

Börn í fjölskyldumiðstöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu í Hvítasunnukirkju síðasta …
Börn í fjölskyldumiðstöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu í Hvítasunnukirkju síðasta vetur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Mennta- og barnamálaráðuneytið mun leggja fé til stuðnings sveitarfélaga þar sem börn á flótta frá Úkraínu og fjölskyldur þeirra eru með búsetu.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá ráðuneytinu í dag. Þar segir ennfremur að markmiðið sé að brúa bilið fram að hausti með tímabundnum stuðningi við móttöku barnanna og skólastarf til að stuðla að virkri þátttöku þeirra.

Sveitarfélög geta sótt um fjárhagslegan stuðning sem nemur allt að 200.000 kr. á hvert barn á aldrinum 0-18 ára.

Mennta- og barnamálaráðuneytið mun einnig veita sveitarfélögum stuðning með ráðgjöf og námskeiðum um móttöku barna á flótta. Ráðgjöf og námskeið verða skipulögð í samstarfi ráðuneytisins og Menntamálastofnunar við sérfræðinga háskóla og sveitarfélaga í móttöku barna á flótta.

Þau náms- og félagslegu úrræði sem stutt verður við má sjá á vef ráðuneytisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert