Grófu upp líkamsleifar til að rannsaka nánar

mbl.is/Hjörtur

Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá því að föstudaginn 27. maí hafi líkamsleifar verið grafnar upp úr kirkjugarði á Vestfjörðum. Um var að ræða líkamsleifar einstaklings sem lést af slysförum fyrir nokkrum áratugum síðan.

„Lögreglustjórinn á Vestfjörðum hafði áður, með vitund og samþykki nánustu aðstandenda hins látna, fengið dómsúrskurð til þessara aðgerða. Hópur lögreglumanna af Vestfjörðum, ásamt tveimur tæknideildarmönnum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, auk réttarlæknis og aðstoðarmanns hans, unnu við uppgröftinn,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni. 

Þá segir, að aðdragandi þessarar aðgerðar sé sá að lögreglunni á Vestfjörðum hafi borist ábending um að umrætt slysaatvik hafi ekki verið upplýst nægjanlega á sínum tíma.

„Þrátt fyrir að langur tími sé liðinn, eru taldar líkur á því að hægt sé að upplýsa nánar um tildrög atviksins sem um ræðir. Líkamsleifarnar eru nú til rannsóknar hjá réttarlækni og beðið er niðurstöðu þeirrar vinnu. Óvíst er hversu langan tíma þessi réttarlæknisfræðilega rannsókn tekur og ótímabært að veita frekari upplýsingar um málið,“ segir lögreglan. 

Lögreglan vildi ekki veita nánari upplýsingar um málið þegar mbl.is leitaði eftir þeim.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka