Deildin lögð niður og þremur sagt upp

Frá bænum Selfossi sem staðsettur er í sveitarfélaginu Árborg.
Frá bænum Selfossi sem staðsettur er í sveitarfélaginu Árborg. mbl.is/Sigurður Bogi

Þremur af fimm starfsmönnum upplýsingadeildar sveitarfélagsins Árborgar hefur verið sagt upp. Deildin verður lögð niður en þeir tveir sem halda starfi sínu munu sjá um stafrænar lausnir Árborgar.

„Á fundi bæjarráðs 14. júní var ákveðið að ráðast í skipulagsbreytingu á upplýsingatæknideild sveitarfélagsins,“ segir í skriflegu svari Berglindar Harðardóttur, mannauðsráðgjafa hjá Árborg, við fyrirspurn blaðamanns um uppsagnirnar.

Boðið út

„Ákveðið var að leggja upplýsingatæknideild niður og bjóða út þann hluta deildarinnar sem snýr að rekstri tölvukerfa og þjónustu við þau. Í þessu fólst að þremur starfsmönnum af fimm var sagt upp, eða þeim sem störfuðu við rekstur og þjónustu við tölvukerfi sveitarfélagsins.

Eftir stendur þá deild stafrænnar þjónustu, en sú deild mun sjá um að innleiða stafrænar lausnir fyrir rekstur sveitarfélagsins, hafa umsjón með vef og auk þess hafa eftirlit með rekstrarsamningi á tölvukerfum og hýsingu á þeim.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert