Fannst látinn í nótt eftir sjósund

Sjósundsmaðurinn sem leitað var að í gærkvöldi fannst látinn. 

Leitað var að ­manninum við Langasand á Akra­nesi. Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð á svæðið ásamt tveim­ur skip­um og björg­un­ar­sveitar­fólki frá Björg­un­ar­félagi Akra­ness. 

Um fimmtíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni.

Ásmundur Kr. Ásmundsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, segir að málið sé til rannsóknar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert