Brenndist á fótum og á kvið

Lögreglan á Suðurlandi segir að laust yfir kl. 10:30 í morgun hafi lögregla og sjúkralið verið kölluð til heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Hvolsvelli vegna veiðimanns sem hafði orðið fyrir miklum bruna á fótum og kvið eftir að hafa fengið í gegnum sig háspennu.

Mjög löng veiðistöng mannsins mun hafa rekist upp í háspennulínu sem liggur yfir Eystri-Rangá móts við bæinn Minna-Hof og þannig leitt spennu niður stöngina og í gegnum manninn. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans í Fossvogi að sögn lögreglu.

Frekari upplýsingar um líðan mannsins liggja ekki fyrir. Maðurinn sem um ræðir er á sextugsaldri, erlendur ríkisborgari í veiðiferð hér á landi.

Vettvangsvinnu er enn ólokið en rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi vinnur að rannsókn málsins, að því er lögreglan greinir frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert