Geimflaug hafnaði við Íslandsstrendur

Geimskot Skyrora misheppnaðist.
Geimskot Skyrora misheppnaðist. Ljósmynd/Skyrora

Geimskot skoska fyrirtækisins Skyrora á Langanesi í dag mistókst með þeim afleiðingum að geimflaugin hafnaði í sjónum við Íslandsstrendur. 

Tæknilegt vandamál varð til þess að geimskotið misheppnaðist en geimflaugin er um ellefu metra löng. 

Eldflaug Skyrora fer á loft frá Sauðanesi á Langanesi. Mynd …
Eldflaug Skyrora fer á loft frá Sauðanesi á Langanesi. Mynd frá 2020. Ljósmynd/Skyrora

Markmið geimskotsins var að geimflaugin myndi standa undir nafni, ná 100 kílómetra lofthæð og þar með formlega komast út í geim.

Forstjóri fyrirtækisins lýtur þó á björtu hliðina og segir þrátt fyrir að geimskotið hafi misheppnast, þá væri hægt að draga mikinn lærdóm frá því. Einnig væri geimskotið sigur fyrir samband Bretlands og Íslands og geimrannsóknir í Evrópu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert