Alvarlegt ofbeldisbrot til rannsóknar

Rannsókn málsins er í fullum gangi.
Rannsókn málsins er í fullum gangi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á Suðurlandi hefur til rannsóknar alvarlegt ofbeldisbrot sem átti sér stað í uppsveitum Árnessýslu í lok apríl.

Þrír karlmenn og ein kona hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins. Allir hinna grunuðu eru Íslendingar.

Lögreglan greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.

Varðhald framlengt til 24. maí

Lögreglan greinir frá því að brotið varði meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti.

„Lögreglan á Suðurlandi er með til rannsóknar meinta frelsissviptingu, líkamsárás og fjárkúgun í heimahúsi í Reykholti. Þrír karlmenn og ein kona hafa sætt gæsluvarðhaldi vegna málsins. Gæsluvarðhaldið var nú síðastliðinn föstudag framlengt til 24. maí næstkomandi og er á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Málið kom upp í lok apríl og er sá er misgjört var við erlendur ríkisborgari sem hefur verið hér á landi í langan tíma. Allir grunaðir í málinu eru Íslendingar,“ segir í færslu lögreglunnar.

Lögreglan á Suðurlandi nýtur aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, embættis ríkislögreglustjóra og embættis héraðssaksóknara. Þá kemur fram að rannsókn málsins sé enn í fullum gangi og muni lögregla því ekki veita frekari upplýsingar um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert