Hellti klór á steina í gufubaði

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Klórslys varð í Grafarvogslaug í gærkvöldi þegar gestur sundlaugarinnar fór inn í lokaða geymslu, sótti þar klór sem hann taldi vera vatn og hellti á steina í gufubaði. Þar sem klór getur verið skaðlegur öndunarfærum fóru nokkrir til skoðunar á bráðamóttöku.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, að það sé ekki rétt, sem hafi komið fram í fjölmiðlum, að starfsmenn hafi verið að þrífa gufuna eða gleymt að loka þar dyrum.

„Ljóst er að um slys var að ræða og hefur lögregla rætt við alla hlutaðeigandi,“ segir í tilkynningunni. 

„Við hörmum að þetta óhapp hafi átt sér stað,“ segir Hrafn Þór Jörgensson, forstöðumaður Grafarvogslaugar, í tilkynningunni. „ÍTR fer ítarlega yfir málið og gripið hefur verið til viðeigandi ráðstafana.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert