Gríðarlega mikil plastmengun í Eldey

Súlan byggir hreiðrin úr veiðarfæradrasli úr plasti. Dauðar súlur sem …
Súlan byggir hreiðrin úr veiðarfæradrasli úr plasti. Dauðar súlur sem fastar voru í plastinu fundust. Ljósmynd/Sindri Gíslason

Leiðangur var farinn í Eldey með þyrlu Landhelgisgæslunnar 6. desember. Þátttakendur voru Svenja Aughage frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Sveinbjörn Steinþórsson frá Háskóla Íslands, Julie Kermarec og Dagur Jónsson frá Umhverfisstofnun og Sindri Gíslason forstöðumaður Náttúrustofu Suðvesturlands.

Hundruð dauðra súlna eru í eynni.
Hundruð dauðra súlna eru í eynni. Ljósmynd/Sindri Gíslason

Sindri sagði að reynt hefði verið að heimsækja Eldey nokkuð reglulega en ferðirnar féllu niður undanfarin ár vegna heimsfaraldursins. Hann skoðaði plastmengun í Eldey en þar er mikið af nælonspottum og öðru plastdrasli sem súlan notar til hreiðurgerðar.

Leiðangursfólk: F.v. Svenja Aughage (NÍ), Sveinbjörn Steinþórsson (HÍ), Julie Kermarec …
Leiðangursfólk: F.v. Svenja Aughage (NÍ), Sveinbjörn Steinþórsson (HÍ), Julie Kermarec (UST), Dagur Jónsson (UST) og Sindri Gíslason (NSV). Ljósmynd/Sindri Gíslason

„Það er mjög mikið af plasti í eynni og það sýnir vel aðgengi súlna að plasti. Það virðist trompa flest annað í vali á hreiðurefni,“ segir Sindri.

Hægt er að nálgast umfjöllunina í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert