Lenti undir vinnutæki

Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hinn slasaða til Reykjavíkur.
Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hinn slasaða til Reykjavíkur. mbl.is/Sigurður Bogi

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti karlmann sem lenti í vinnuslysi við Búðardal í dag. 

Maðurinn lenti undir vinnutæki eftir því sem mbl.is kemst næst en ekki liggur fyrir hversu alvarlegir áverkarnir eru. 

Var maðurinn fluttur til Reykjavíkur en útkallið barst Gæslunni í hádeginu. 

Lögreglunni á Vesturlandi hefur ekki upplýsingar um tildrög slyssins á þessum tímapunkti og eru þau til rannsóknar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert