Rafmagn er komið á víða á Suðurnesjum

Starfsmenn Landsnets við viðgerðir í tengi­virk­inu í Fitj­um.
Starfsmenn Landsnets við viðgerðir í tengi­virk­inu í Fitj­um. Ljósmynd/Landsnet

Rafmagn er komið á víða á Suðurnesjum. Samkvæmt Stein­unni Þor­steins­dótt­ur upp­lýs­inga­full­trúa Landsnets er línan komin í rekstur en þá taki við smá tími þar sem verið er að byggja kerfið upp aftur.

Steinunn segist vonast til, ef vel gengur, að það taki ekki nema kannski 15-20 mínútur þar til allir hafa fengið rafmagn á ný.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert