Reiknar ekki með niðurstöðu í Karphúsinu

Halldór Benjamín í Karphúsinu í morgun.
Halldór Benjamín í Karphúsinu í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fundur SA og Eflingar hjá ríkissáttasemjara er að hefjast í Karphúsinu og er fólk byrjað að tínast inn í salinn. 

„Ég tel engar líkur á að þetta muni leiða til nokkurrar niðurstöðu hér í dag,“ sagði Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, í Karphúsinu.

Hann sagði það nýmæli að Efling skuli mæta þegar ríkissáttasemjari boði til fundar.

„Mér hefur þótt innantómur tónn í því að segjast vilja semja en mæta síðan ekki,“ bætti hann við.

Ástráður Haraldsson í Karphúsinu.
Ástráður Haraldsson í Karphúsinu. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég geri ráð fyrir því að við verðum hérna eitthvað inn í dag en ég hins vegar ítreka að langlundargeði Samtaka atvinnulífsins eru einhver mörk sett,“ sagði Halldór Benjamín einnig og nefndi að fulltrúar SA muni ekki sitja undir neinum „sýndarviðræðum“ í Karphúsinu á sama tíma og Efling boði mjög umsvifamikil verkföll.

mbl.is/Kristinn Magnússon

Ástráður Har­alds­son, sem var sett­ur rík­is­sátta­semj­ari í kjara­deil­unni í gær eft­ir að Aðal­steinn Leifs­son sagði sig frá henni, beið ekki boðanna og boðaði samn­inga­nefnd­ir málsaðila til sátta­fund­arins. 

mbl.is/Kristinn Magnússon
Ástráður Haraldsson er settur ríkissáttasemjari í deilu Eflingar og SA, …
Ástráður Haraldsson er settur ríkissáttasemjari í deilu Eflingar og SA, þar sem Halldór Benjamín Þorbergsson og Sólveig Anna Jónsdóttir eru í forsvari. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert