Verktaki fann einstakan helli fyrir tilviljun

Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Hraunhellir fannst á dögunum í grennd við Jarðböðin í Mývatnssveit þar sem unnið var að greftri grunnar fyrir nýbyggingar. Jarðvinnuverktaki var þar að brjóta klöpp þegar þak hellisins gaf sig og stærðarinnar niðurfall birtist skyndilega.

Í tilkynningu á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að starfsmenn stofnunarinnar hafi þegar farið í tvær vettvangsferðir í hellinn og þykir ljóst að hann geymi sérstakar og afar fágætar jarðmyndanir.

Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Þar til þak hellisins brotnaði var hellinn sennilega heitur og fullur af jarðhitalofti. Við þær aðstæður hafa myndast afar sérstakar og viðkvæmar útfellingar.

Óljóst er nákvæmlega um hvaða útfellingar er að ræða, en fágæti og sérstaða þeirra þykir ótvírætt og verndargildi hátt. Útfellingarnar mynda á vissum svæðum í hellinum samfelldar breiður sem þekja óslitið nokkra fermetra.

Ljósmynd/Umhverfisstofnun

Til að valda sem minnstu raski á jarðminjunum í hellinum hefur umferðin um hann verið takmörkuð verulega. Dreifing útfellinganna um hellinn er slík að erfitt er að ferðast um hellinn án þess að valda óafturkræfu raski á þeim. Starfsmenn verkfræðistofunnar EFLU hafa unnið að kortlagningu og skönnun hellisins, ásamt því að afmarka með böndum ákveðna leið um hellisgólfið.

Ljósmynd/Umhverfisstofnun
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert