Nærri 900 milljón króna styrkur til lyfjaþróunar

Egill Másson, framkvæmdastjóri Akthelia, og Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í …
Egill Másson, framkvæmdastjóri Akthelia, og Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor í frumulíffræði við HÍ og rannsóknastjóri Akthelia. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Sprotafyrirtækið Akthelia Pharmaceuticals og Háskóli Íslands leiða verkefni sem fengið hefur sex milljóna evra styrk, jafnvirði nærri 900 milljóna króna, frá Evrópusambandinu.

Verkefnið, sem nefnist IN-ARMOR, miðar að þróun nýrra lyfja sem magna náttúrlegar ónæmisvarnir líkamans og vinna þannig gegn vaxandi hættu af sýklalyfjaþolnum bakteríum.

Níu háskólar og rannsóknastofnanir og sjö fyrirtæki í níu Evrópulöndum koma að verkefninu. 

Í verkefninu er tekist á við þá miklu hættu sem heiminum stafar af auknu þoli baktería fyrir sýklalyfjum, en Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skilgreint þessa ógn sem eina af tíu stærstu áskorunum heimsins á sviði heilbrigðismála,“ segir í tilkynningu. 

Þá segir að áætlað sé að rekja megi andlát fimm milljóna manna árlega til aukins þols baktería gagnvart stórum hópum sýklalyfja „og óttast er að heimsfaraldur geti brotist út ef fram koma bakteríustofnar sem verða ónæmir fyrir öllum sýklalyfjum. Því er þörf á nýjum leiðum til þess að takast á við sýkingar í mannslíkamanum og þar getur tækni og aðferðir Akthelia komið að góðum notum.

20 ára fyrirtæki

Akthelia var stofnað fyrir rúmum 20 árum og grundvallast starfsemi þess á grunnrannsóknum innan Háskóla Íslands.

Stofnendur fyrirtækisins eru þeir Guðmundur Hrafn Guðmundsson, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild, og Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild, og samstarfsfélagar þeirra, Roger Strömberg og Birgitta Agerberth, prófessorar við Karolinska-stofnunina í Svíþjóð.

Háskóli Íslands er meðal eigenda sprotafyrirtækisins sem á síðustu árum hefur aflað veglegra styrkja úr rannsókna- og nýsköpunarsjóðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert