Nokkrar krónur á bensínstöð en tvær kúlur í Bónus

Skakk­ar korta­færsl­ur hlaupa á hundruðum hjá Bón­us.
Skakk­ar korta­færsl­ur hlaupa á hundruðum hjá Bón­us. Samsett mynd

Hver hefur ekki lent í því að vakna eftir helgina og átta sig á því að hafa gerst helst til of stórtækur í verslunum og á veitingahúsum?

Nokkur hluti landsmanna fékk synjun á færslur í gærmorgun og þegar litið var á færsluyfirlitið í kjölfarið komu í ljós óvenjulega háar færslur úr óvæntum áttum.

Hver hefur ekki reitt fram fimm milljónir fyrir fermingartertu eða 506 þúsund krónur fyrir tvær páskaliljur? Það er nú einu sinni verðbólgutíð.

Sumir landsmenn voru heppnari en aðrir eins og sá sem slapp með fimmkall fyrir kaffi.

Ástæðan lá í villu í greiðslukerfum vegna staðlabreytingar á íslensku krónunni.

Mbl.is tók saman helstu viðbrögð fólks sem lenti mis vel eða illa í því vegna villunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert