Rifu hluta af húsinu niður

Frá vettvangi í morgun.
Frá vettvangi í morgun. Ljósmynd/Eva Björk

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er búið að rífa hluta af gamla slippnum við Hafnarfjarðarhöfn sem brann í gær og verður afgangurinn rifinn í dag.

Fyrirtækið Fura mun sinna því verkefni fyrir hönd tryggingafélags, að sögn Lárusar Steindórs Björnssonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu.

Ljósmynd/Eva Björk

Slökkvistarfinu er lokið og verður ekkert viðbragð á staðnum í dag nema eldur komi upp. Slökkviliðið var að til klukkan þrjú í nótt og telur sig hafa slökkt allar glæður.

Ljósmynd/Eva Björk

Að sögn Lárusar Steindórs brunnu þrjár byggingar sem eru samfastar og eru þær allar ónýtar. Næsta bygging við hliðina, þar sem siglingaklúbbur er til húsa, slapp alveg.

Tæknideild lögreglunnar mun rannsaka vettvanginn í dag. Óljóst er um eldsupptök. 

Slökkviliðið að störfum í nótt.
Slökkviliðið að störfum í nótt. Ljósmynd/Eva Björk
Ljósmynd/Eva Björk
Ljósmynd/Eva Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka