Rafmagnslaust í Biskupstungum

Laugarás í Bláskógabyggð í Biskupstungum.
Laugarás í Bláskógabyggð í Biskupstungum. Morgunblaðið/Siggi Bogi

Rafmagnsbilun varð um klukkan sex í morgun í Reykholti, Biskupstungum og víðar, og er unnið að viðgerð.

Í tilkynningu á vef Rarik kemur fram að verið sé að leita að bilun. 

Fólk sem hefur upplýsingar sem gætu hjálpað við bilanaleit, er beðið um að hafa samband við svæðisvakt Rarik á Suðurlandi í síma 528 9000. 

Uppfært 10:30

Rafmagnsbilun varð í 33kV streng milli Flúða og Reykholts. Unnið er að viðgerð og vonast er að viðgerð ljúki um klukkan 13.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert