Gosið við Litla-Hrút dregur augað í pung

Hraunrennslið minnkar stöðugt í eldgosinu við Litla-Hrút og er nú …
Hraunrennslið minnkar stöðugt í eldgosinu við Litla-Hrút og er nú aðeins talið um 3-4 rúmmetrar á sekúndu, en eins og sjá má að ofan er mikið farið að storkna í gígjaðrinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hraunið í eldgosinu við Litla-Hrút stækkaði lítið í síðustu viku og er nú orðið 1,5 ferkílómetrar. Hraunbreiðan er því orðin umfangsmeiri en sú sem rann í gosinu fyrir ári, en aðeins um tíundi þess sem gerðist 2021.

Hraunrennslið minnkar nú stöðugt og er nú aðeins talið um 3-4 rúmmetrar á sekúndu, en eins og sjá má að ofan er mikið farið að storkna í gígjaðrinum, engu er líkara en augað sé að lokast og margt bendir til þess að goslok séu í nánd. Eftir sem áður leggja margir leið sína að gosstöðvum og stemningin er mikil.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert