Loftslagsráð þróað og eflt

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. mbl.is/Sigurður Bogi

Þróa þarf og efla Loftslagsráð svo það geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu til jafns við sambærileg ráð nágrannaríkja okkar. Þetta kemur fram í minnisblaði sem Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti fyrir ríkisstjórn í gær. 

Þetta kemur fram í tilkynningu inni á vef Stjórnarráðsins.

Loftslagsráð, sem er sjálfstætt starfandi ráð, hefur það meginhlutverk að veita stjórnvöldum aðhald og ráðgjöf um stefnumarkandi ákvarðanir og markmið Íslands sem tengjast loftslagsmálum, en ráðið lauk fjögurra ára skipunartíma sínum fyrir skemmstu.

Ráðið var sett á fót í kjölfar breytinga á lögum um loftslagsmál árið 2019 og er í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar kveðið á um að hlutverk Loftslagsráðs skuli tekið til endurskoðunar, með aukinni áherslu á ráðgefandi hlutverk og vísindastarf, auk aðhalds- og eftirlitshlutverks gagnvart stjórnvöldum.

Hefur skilað góðri grunnvinnu

„Loftslagsráð hefur skilað góðri grunnvinnu og haft jákvæð áhrif, meðal annars með því að brýna stjórnvöld til stefnumótunar, efla stöðu þekkingar um eðli loftslagsvandans og viðbragða við honum. Nú þurfum við síðan að leggja aukna áherslu á ráðgefandi hlutverk ráðsins og vísindastarf og er vinna í gangi í ráðuneytinu með það að markmiði að við fáum þróað og eflt Loftslagsráð svo það öðlist sambærilegt hlutverk og í nágrannaríkjum okkar,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert