Íbúum hleypt inn á skilgreint svæði

Björgunarsveitarfólk á vettvangi núna í morgunsárið.
Björgunarsveitarfólk á vettvangi núna í morgunsárið. Ljósmynd/Landsbjörg

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði í Grindavík. Svæðið sem um ræðir er austan megin við Víkurbraut í Grindavík, að Ægisgötu.

Íbúar og fyrirtæki austan megin við Víkurbraut og norðan við Austurveg eru í fyrsta hópi að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. 

Lögregla stýrir aðgerðum.

Söfnunarstaður við bílastæðið við gossvæðið

Íbúar sem fá að fara inn til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall.

Það þarf að koma um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fer fram upplýsingataka og skráning, ásamt því að fólk fær frekari leiðbeiningar. Frá söfnunarstað verður ekið í bílum viðbragðsaðila inn í bæinn.

Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð. Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar.

Svæðið sem um ræðir.
Svæðið sem um ræðir. Kort/Lögreglan á Suðurnesjum

Íbúar við þessar götur eru í fyrsta hópi:

Víkurhóp, Norðurhóp, Hópsbraut, Suðurhóp, Efrahóp, Austurhóp, Miðhóp, Stamphólsveg, Víðigerði, Austurveg, Mánagötu, Mánasund, Mánagerði, Túngötu, Arnarhlíð, Akur og Steinar. 

Uppfært: íbúar við Marargötu og Vesturhóp fá einnig að fara inn á svæðið. Heimilisföngin gleymdust í fyrri tilkynningu frá lögreglunni.

Fyrirtæki við þessar götur eru í fyrsta hópi:

Hafnargötu, Seljabót, Miðgarð, Ránargötu, Ægisgötu (sunnan við Seljabót), Garðsveg, Verbraut, Víkurbraut og við hafnarsvæðið.

Tilmæli til athugunar fyrir íbúa:

  • Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara.
  • Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili.
  • Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað.
  • Munið eftir húslykli.
  • Hafið búr fyrir gæludýr ef þörf er á.
  • Hafið poka eða annað undir muni.
  • Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
  • Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
  • Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk.
  • Heimilt verður að keyra ökutæki sem skilin voru eftir við rýmingu, út af svæðinu frá Grindavík, en eingöngu í fylgd viðbragðsaðila.

Uppfært kl. 11:45

Að sögn lögreglu mega íbúar eftirfarandi svæða gefa sig fram á MÓT við Suðurstrandarveg kl. 13:00 í dag:

Skipastígur-Árnastígur-Glæsivellir-Ásvellir-Sólvellir-Blómsturvellir - Baðsvellir-Gerðavellir-Selsvellir-Litluvellir-Hólavellir-Höskuldavellir-Gerðavellir-Iðavellir-Efstahraun – Heiðarhraun -Hvassahraun -Staðarhraun – Borgarhraun -Arnarhraun-Víkurbraut.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum inn á …
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að hleypa íbúum inn á svæðið, þó aðeins á skilgreint svæði. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert