Skýr merki um sigdalinn á gervitunglamyndum

Kvikugangurinn er fjólublár og blár á kortinu hér að ofan.
Kvikugangurinn er fjólublár og blár á kortinu hér að ofan. Kort/Veðurstofa Íslands

Land í vesturhluta byggðarinnar í Grindavík hefur sigið niður um allt að einn metra. Þetta kemur í ljós þegar gervitunglagögn eru greind. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands. 

Sigdalurinn og kvikugangurinn sjást greinilega á myndunum og fara í gegnum Grindavík. 

Gervitunglamynd (COSMO-SkyMed), svokallað bylgjuvíxlrit, sem nær yfir tímabilið 3.-11. nóvember sýnir umfangsmikið aflögunarsvið sem tengist kvikuinnskotinu sem hófst síðdegis 10. nóvember hjá Svartsengi.

70 milljón rúmmetrar

Þetta bylgjuvíxlrit gerði vísindamönnum kleift að reikna líkan til að áætla umfang kvikugangsins.

Niðurstaðan var að kvikugangurinn er um 15 km langur og að kvikan lægi á um 800 m dýpi þar sem hún væri grynnst.

Út frá líkaninu var rúmmálsbreytingin í tengslum við myndun gangsins væri um 70 milljónir rúmmetra.

Bylgjuvíxlmynd sem sýnir aflögun.
Bylgjuvíxlmynd sem sýnir aflögun. Kort/Veðurstofa Íslands

Notuð við ákvarðanatöku

Bylgjuvíxlmyndin var hluti af þeim gögnum sem notuð voru til þess að grundvalla þá ákvörðun almannavarna um að rýma Grindavík á föstudagskvöld. 

Verið er að vinna ný líkön byggð á nýrri ICEYE-gervitunglamynd og einnig nýjum GPS-mælingum sem ná yfir síðasta þróun virkninnar síðasta sólarhringinn. Þau líkön koma til með að gefa betri mynd af þróun kvikugangsins og magn kviku sem flæðir inn í ganginn.

Þessi mynd sem byggð er á breytingum milli 10. og 11. nóvember, sýna breytingu sem varð á yfirborði við myndun kvikugangsins. Bláir litir tákna landsig og á myndinni má greinilega sjá legu kvikugangsins og sigdalinn sem myndast hefur við suðurenda hans.

Frá Grindavík í dag.
Frá Grindavík í dag. mbl.is/Brynjólfur Löve
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka