Halda upplýsingafund á morgun

Víðir Reynisson stýrir fundinum á morgun.
Víðir Reynisson stýrir fundinum á morgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almannavarnir boða til upplýsingafundar í björgunarmiðstöðinni í Skógahlíð klukkan 11 á morgun. Þá hefur verið ákveðið að halda upplýsingafundi á miðvikudag og föstudag á sama tíma og á sama stað.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef almannavarna.

Á fundinum á morgun mun Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, fagstjóri endurreisnar hjá almannavörnum, fara yfir starfsemi þjónustumiðstöðvar almannavarna sem opnuð var á miðvikudag.

Einnig verður Jóhanna Lilja Birgisdóttir, yfirsálfræðingur á félagsþjónustu- og fræðslusviði hjá Grindavíkurbæ, á fundinum. Hún mun fara yfir stöðu skólamála.

Fundinum stýrir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert