Upptaka: Upplýsingafundur almannavarna

Víðir Reynisson stýrir fundinum.
Víðir Reynisson stýrir fundinum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almannavarnir standa fyrir upplýsingafundi í dag klukkan 11.00 þar sem farið verður yfir starfsemi þjónustumiðstöðvar almannavarna sem opnuð var í síðustu viku fyrir íbúa Grindavíkur. Einnig verður farið yfir stöðu skólamála vegna atburðanna í Grindavík.

Það er Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, fagstjóri endurreisnar hjá almannavörnum, sem mun á fundinum fara yfir starfssemi þjónustumiðstöðvar almannavarna.

Þá mun Jóhanna Lilja Birgisdóttir, yfirsálfræðingur á félagsþjónustu- og fræðslusviði hjá Grindavíkurbæ, fara yfir stöðu mála í skólamálum vegna atburðanna í Grindavík. Fundinum stýrir Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna.

Stefnt er að því að upplýsingafundir verði einnig haldnir á sama tíma á miðvikudaginn og föstudaginn.

Hér má horfa á upptöku frá fundi dagsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert