Lauk 36 ára ferli í gær

Jakob Ólafsson fór í síðasta flugið frá Sikiley á TF-SIF …
Jakob Ólafsson fór í síðasta flugið frá Sikiley á TF-SIF í gær. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Jakob Ólafsson, flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni, lauk 36 ára glæstum ferli hjá Gæslunni þegar hann lenti TF-SIF í síðasta sinn á flugvellinum í Cataniu í gær. 

Jakob flaug bæði þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar en síðustu ár hefur hann verið flugstjóri á eftirlitsflugvélinni TF-SIF. Hann var flugstjóri í fjölmörgum eftirminnilegum björgunarflugum á löngum og farsælum ferli.

„Um þessar mundir er TF-SIF og áhöfn hennar við störf á Ítalíu fyrir Frontex, landamærastofnun Evrópusambandsins, og því var síðasta flug Jakobs farið þaðan. Jakob hefur verið flugmaður hjá Landhelgisgæslunni frá árinu 1987,“ segir í færslu Landhelgisgæslunnar á Facebook. 

Jakob fór ásamt áhöfn TF-SIF í sitt síðasta flug frá Sikiley í gær og fékk hann góðar móttökur frá félögum sínum, flugvallarstarfsmönnum og fjölskyldu sinni sem lagði leið sína til Ítalíu til að fagna þessum merka áfanga með Jakobi. 

Landhelgisgæslan þakkar Jakobi vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar í næsta kafla lífsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert