Lægðirnar herja á Bretlandseyjar

Strengurinn gæti náð á syðst á landið.
Strengurinn gæti náð á syðst á landið. Ljósmynd/Styrmir Kári

Kólna tekur norðan- og austanlands þegar líða fer á vikuna, en á sama tíma fer hiti rétt undir frostmark við suðurströndina. 

Þegar líða tekur á vikuna má búast við frosti að 10 stigum norðan- og austanlands.

Þá verða austlægar áttir næstu daga og smá strengur með suðurströndinni, þó ekki meira en 10-15 metrar á sekúndu, segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Er þetta vegna sterkrar hæðar sem liggur yfir Grænlandi en þar sem lægðirnar fara langt suður af landinu, herja þær í staðinn á Bretlandseyjar.

Stundum koma þessar lægðir þó aðeins nær landinu og þá getur orðið strengur syðst á landinu. 

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert