Skýjalausn í skólastarfi lögbrot

Garðabæ og fjórum öðrum sveitarfélögum hefur verið gert að hætta …
Garðabæ og fjórum öðrum sveitarfélögum hefur verið gert að hætta notkun skýjalausnar Google í grunnskólastarfi sínu í síðasta lagi 29. febrúar 2024. mbl.is/Kristinn Magnússon

Persónuvernd hefur komist að þeirri niðurstöðu, og úrskurðað til samræmis við það, að notkun Garðabæjar á skýjalausn Google í grunnskólastarfi bæjarins samrýmist ekki lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga númer 90/2018 auk ákvæða reglugerðar (ESB) 2016/679.

Leggur Persónuvernd fyrir Garðabæ í ákvörðun sinni að færa vinnsluna til samræmis við löggjöfina og veitir frest til lagfæringarinnar til 29. febrúar 2024.

Leggur Persónuvernd auk þess stjórnvaldssekt á sveitarfélagið að fjárhæð 2.500.000 krónur en sambærileg ákvörðun stofnunarinnar beinist enn fremur að fjórum öðrum sveitarfélögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert