Fjölbreyttari eignir vantar fyrir Grindvíkinga

Frá Grindavík.
Frá Grindavík. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls hafa 44 leigusamningar farið í gegn á leigutorgi fyrir íbúa Grindavíkur sem var opnað fyrir rúmri viku.

Skráðar eignir á torginu eru 162 talsins en þar getur fólk sem vill styðja Grindvíkinga boðið eignir sínar til útleigu.

„Enn vantar þó fjölbreyttari eignir, bæði eftir gerð og staðsetningu, til að allir Grindvíkingar hafi öruggt skjól yfir jól og áramót. Skortur er á fleiri stærðar- og verðflokkum til að koma til móts við fjölbreytt samfélag Grindavíkur en t.a.m. er talsverður skortur á eignum þar sem gæludýr eru velkomin,” segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert