Tveir fengu 86,5 milljónir

Tveir fengu annan vinning.
Tveir fengu annan vinning.

Tveir miðahafar voru með annan vinning í útdrætti kvöldsins í Eurojackpot og fá þeir 86,5 milljónir króna hvor. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi og Póllandi.

Þá voru tíu miðahafar með þriðja vinning og fær hver þeirra tæpar 10 milljónir í sinn hlut. 

Sjö miðanna voru keyptir í Þýskalandi, tveir á Spáni og einn í Finnlandi.

Enginn var með allar tölur réttar og í réttri röð í Jókernum en einn miðahafi var með annan vinning og fær 100 þúsund krónur í vasann. Miðinn var keyptur á vefnum lotto.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert