Hlynnt þjóðarsjóði en vill lækka skuldir fyrst

Þórdís Kolbrún segir Þjóðarsjóð á þingmálaskrá.
Þórdís Kolbrún segir Þjóðarsjóð á þingmálaskrá. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þjóðarsjóður, sem hefur það hlutverk að bregðast við ófyrirséðum áföllum í þjóðarbúinu, er á þingmálaskrá Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, fjármálaráðherra. Hún segir þó að ekki verði greitt inn á slíkan sjóð fyrr en skuldahlutfall hefur verið greitt niður.

„Ég geri ráð fyrir því þetta verði rætt í þinginu á næstunni,“ segir Þórdís Kolbrún.

Hugmyndir um slíkan þjóðarsjóð eru ekki nýjar af nálinni og kynnti Bjarni Benediktsson, fyrrum fjármálaráðherra hugmyndir um hann árið 2016. Þá var hann í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks árið 2017. Þá stóð til að setja frumvarp um þjóðarsjóð á dagskrá þingveturinn 2018-2019 en ekki varð af því. 

Sig­urður Kári Kristjáns­son, stjórn­ar­formaður Nátt­úru­ham­fara­trygg­ing­ar Íslands, sagði í aðsendri grein í Morgunblaðinu í gær að nauðsyn þjóðasjóðs blasi við. 

„Ég hef komið inn á það sérstaklega í ljósi þeirra atburða sem blasa við okkur í Grindavík og það sem vísindamenn segja við okkur um framhaldið að það sé ábyrgðarhluti að setja á fót hamfarasjóð, eða þjóðarsjóð á laggirnar,“ segir Þórdís.

Bjartsýn á lausn fyrir Grindvíkinga 

Aðspurð segir Þórdís að umræður um húsnæðismál Grindvíkinga séu komnar vel á veg og séu á áætlun en talað var um að útfærslur til handa Grindvíkingum myndu liggja fyrir snemma í febrúar.

„Samtal við fjármálastofnanir og lífeyrissjóðir ganga nokkuð vel. Ég leyfi mér að vera bjartsýn að við náum saman um heildarlausn,“ segir Þórdís.

Fundur verður í vikunni með samráðsnefnd allra flokka um málefnið og segir Kolbrún ekki tímabært að segja nánar til um þá útfærslu sem helst er til skoðunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert