Látinn eftir umferðarslys á Reykjanesbraut

Karlmaður er látinn eftir alvarlegt umferðarslys sem varð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði, á móts við álverið í Straumsvík, þriðjudaginn 30. janúar, en tilkynning um slysið barst lögreglu kl. 18.58.

Þar rákust saman fólksbifreið og vöruflutningabifreið, en þeim var ekið úr gagnstæðri átt.

Rannsaka tildrög slyssins

Maðurinn var annar ökumannanna, að því er fram kemur í tilkynningu lögreglu.

Hinn látni hét Eiríkur Örn Jónsson og lætur hann eftir sig unnustu og fjögur börn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og rannsóknarnefnd samgönguslysa rannsaka tildrög slyssins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert