„Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?“

Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- …
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra. Samsett mynd/mbl.is

Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur sent Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, opið bréf vegna kröfu hennar, fyrir hönd ríkisins, um að allar Vestmannaeyjar og Heimaey að hluta verði gerð að þjóðlendu.

Um er að ræða kröfu um að Heimaklettur, Eldfell, allt nýtt landsvæði vegna Eyjagossins árið 1973, Stórhöfði og fleiri merk landsvæði á Heimaey verði gerð að þjóðlendum. Þar að auki allar aðrar eyjar en Heimaey sem teljast til Vestmannaeyja.

Bæjarstjórn kveðst ekki ætla í lagaþrætu um málið en biðlar til Þórdísar að hún beiti skynsemi í málinu og dragi kröfuna til baka. Spyrja þau einnig hver tilgangurinn sé með þessari kröfu.

Bréfið í heild:

„Ágæta Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.

Þann 2. febrúar s.l. var undirrituð fyrir þína hönd krafa um að Vestmannaeyjabær afhendi ríkinu stóran hluta Heimaeyjar og allar úteyjar og sker sem sameiginlega mynda það sem heitir Vestmannaeyjar. Þessi krafa hefur þó enn ekki verið send okkur Eyjamönnum heldur benti góðviljaður lögmaður okkur á að hún hefði birst á heimasíðu Óbyggðanefndar. Þessa nefnd hafa Eyjamenn hingað til látið afskiptalausa, og hún okkur, enda fremur langsótt að telja 13 ferkílómetra eyju með 4,600 íbúum til óbyggða; jafnvel þótt úteyjarnar séu taldar með enda eru þær flestar byggðar reisulegum veiðihúsum.

Með langri sögulegri upprifjun á 35 blaðsíðum, sem nær allt frá Landnámu Ara fróða á 12. öld, kemst lögmaður Óbyggðanefndar fyrir þína hönd að þeirri niðurstöðu að ríkið eigi að heimta af Vestmannaeyjabæ í fyrsta lagi allar úteyjar og sker - og á Heimaey sjálfri m.a. fjöll á borð við Heimaklett og Blátind. Einnig vill ríkið eignast allar hlíðar Herjólfsdals – þ.m.t. brekkuna sem Brekkusöngurinn á Þjóðhátíð er kenndur við. Dalbotninn sjálfan mega Eyjamenn þó náðarsamlegast eiga áfram. Einnig vill ríkið eigna sér sem þjóðlendu allt Eldfell og allt nýja hraunið sem myndaðist í gosinu 1973. Virðist þá gilda einu að þar sé búið að leggja vegi, skipuleggja og úthluta lóðum til atvinnurekstrar og miklar framkvæmdir þegar hafnar, m.a. við landeldi á laxi.

Hér er fátt eitt upp talið af því sem ríkið vill nú sölsa undir sig í Vestmannaeyjum - sem er þeim mun undarlegra þegar haft er í huga að sama ríki afsalaði til Vestmannaeyjabæjar öllu þessu landi á grundvelli sérstakrar lagasetningar þar um 1960, fyrir 63 árum.
Við ætlum hins vegar ekki í þessu bréfi að efna til lagaþrætu um málið. Það gerist stundum að þrengsta túlkun á tilteknum lagagreinum fer út fyrir landamæri almennrar og heilbrigðrar skynsemi. Frægt dæmi er þegar til stóð fyrir nokkrum áratugum að skattleggja þá aura sem blaðburðarbörn unnu sér inn. Þáverandi forsætisráðherra beitti heilbrigðri skynsemi og sagði sem frægt varð: ‘’Svona gera menn ekki’’ – og málið var dautt.

Núna förum við þess á leit við þig, hæstvirtur ráðherra, að þú beitir sambærilegri skynsemi í þessu máli og látir draga umrædda kröfu, sem gerð er í þínu nafni, til baka.

Það hefur aldrei komið upp sá ágreiningur, álitamál eða vafamál um eignarhald á landi í Vestmannaeyjum að það kalli á inngrip ríkisins af þessu tagi. Um þessi mál ríkir fullkomin og vandræðalaus sátt og samlyndi allra aðila og furðulegt að ríkisvaldið sé nú með ærnum tilkostnaði að efna til ófriðar þar sem enginn ágreiningur er fyrir. Fjármunum og kröftum ríkisins er væntanlega betur varið þessa dagana í annað en tilraunir til að sölsa undir sig land í Vestmannaeyjum.

Hver er eiginlega tilgangurinn með þessu?“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert