Tvær vélar rákust saman á flugi

Við Keflavíkurflugvöll.
Við Keflavíkurflugvöll. mbl.is/Kristinn Magnússon

Tvær einkaflugvélar rákust saman á flugi við Vestmannaeyjar í gær. Vélarnar, sem voru flughæfar eftir áreksturinn, lentu á Keflavíkurflugvelli í kjölfarið. 

Víkurfréttir greina frá þessu.

Flugvélarnar, sem eru báðar á erlendri skráningu, eru af gerðinni Kingair B200. Flugmaður og einn farþegi voru í annarri vélinni en flugmaður í hinni, að því er fram kemur í umfjöllun miðilsins.

Slysið í rannsókn

„Rannsóknarnefnd samgönguslysa er með umrætt alvarlegt flugatvik til rannsóknar, er varð í gær þegar tvær flugvélar rákust saman á flugi nálægt Vestmannaeyjum. Ég get ekki sagt mikið meira um málið á þessu stigi,“ segir Ragnar Guðmundsson hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa í svari við fyrirspurn Víkurfrétta.

Ekki tilkynnt um atvikið í fyrstu

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta lentu flugvélarnar á Keflavíkurflugvelli í gær og tilkynntu ekki um atvikið. Þá voru það þjónustuaðilar flugvélanna sem sáu að þær voru skemmdar. Í kjölfarið greindu flugmennirnir frá því sem hefði gerst.

Lögregla og fulltrúar nefndarinnar voru þá kölluð til.

Frekari upplýsingar hafa ekki komið fram en vélarnar standa enn á Keflavíkurflugvelli, að því er Víkurfréttir herma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert