Vilja stofna embætti umboðsmanns náttúrunnar

Samtökin skora á stjórnvöld að vinna gegn náttúrutapi á Íslandi.
Samtökin skora á stjórnvöld að vinna gegn náttúrutapi á Íslandi. Ljósmynd/Landvernd

Náttúruverndarsamtök sem starfa á Íslandi, vilja að náttúran fái sterkara umboð í samfélaginu og telja því nauðsynlegt að stofnað verði embætti umboðsmanns náttúrunnar auk sjálfstæðs umhverfisráðuneytis. 

Þetta kemur fram í ályktun náttúruverndarhreyfingarinnar sem sótti samstöðufund Landverndar í Miðgarði, menningarmiðstöð Reykjavíkur, í Úlfarsárdal um helgina. 

Fjölmennt var á fundinum.
Fjölmennt var á fundinum. Ljósmynd/Landvernd

Skora á stjórnvöld að vinna gegn náttúrutapi 

Í ályktuninni segir að samtökin telji ekki að einn og sami ráðherran eigi að fara með umhverfis og orkumál heldur eigi að hafa einn öflugan ráðherra sem hefur umhverfisvernd að leiðarljósi í öllu sínu starfi. 

Þar segir jafnframt að hreyfingin vilji auka náttúrulæsi, virðingu og tilfinningu fyrir náttúrunni í gegnum skólakerfið og til almennings, enda séu umhverfismál lýðheilsumál. Náttúruverndarsamtök hyggjast leggja sitt af mörkum með auknu samráði, fræðslu og öflun upplýsinga um öll svið umhverfisverndar.

Auk þess segir að fræða þurfi um loftslags- og orkumál í landinu og greiða úr þeirri upplýsingaóreiðu sem þar ríkir. Loks skora samtökin, sem vilja vinna gegn náttúrutapi á Íslandi, á stjórnvöld að taka þátt í þeirri vinnu. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert