Grindvíkingum frjálst að dvelja í bænum á eigin ábyrgð

Grindavík
Grindavík mbl.is/Kristinn Magnússon

Ríkislögreglustjóri hefur falli frá fyrirmælum um brottflutning úr Grindavík. Fellur þar með úr gildi ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um brottvísun sem síðast var framlengd þann 4. febrúar. Ákvörðunin tekur gildi kl 7 í fyrramálið og gildir til 29. febrúar næstkomandi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Úlfari Lúðvíkssyni, lögreglustjóra á Suðurnesjum.

Ekki staður fyrir barnafólk  

„Með hliðsjón af framansögðu hefur lögreglustjórinn á Suðurnesjum tekið þá ákvörðun að heimila Grindvíkingum og þeim sem starfa Í Grindavík að dvelja og starfa í bænum allan sólarhringinn með vitneskju um neðangreint:

  • Íbúar og starfsmenn fari inn í bæinn á eigin ábyrgð. Hver og einn verður að bera ábyrgð á eigin athöfnum eða athafnaleysi. Lögreglustjóri tekur skýrt fram að Grindavík er ekki staður fyrir barnafólk eða börn að leik. Þar eru ekki starfræktir skólar og innviðir eru í lamasessi. Stofnlögn heitavatns til bæjarins lekur, að því er talið er undir hrauni, en leitað er bilunar. Það eru tilmæli til fólks að ekki sé hróflað við stillingum heitavatns í húsum. Kalt vatn er ekki komið á og því ekkert neysluvatn. Aðstæður eru því aðrar en þær sem telja má boðlegar fyrir búsetu í húsum.
  • Jarðsprungur eru víða í og við bæinn og sprungur geta opnast án fyrirfara. Hætta er metin töluverð á jarðfalli ofan í sprungur og sprunguhreyfingum. Mótvægisaðgerðir eru og hafa verið í gangi sem felast m.a. í kortlagningu, jarðkönnun, jarðsjármælingum og sjónskoðun.
  • Opin svæði í og við Grindavík hafa ekki verið skoðuð sérstaklega. Fólk haldi sig við gangstéttir og götur bæjarins og forðist að fara út á lóðir og önnur opin svæði.
  • Grindavík er lokuð öllum öðrum en íbúum bæjarins, starfsmönnum fyrirtækja og þeim sem þurfa að aðstoða íbúa.

Enn eru hættur á svæðinu í kjölfar eldgoss við Stóra Skógfell og aðstæður innan og utan hættusvæða geta breyst með litlum fyrirvara. Þá geta hættur leynst utan merktra svæða. Land rís í Svartsengi,“ segir í tilkynningu frá Úlfari.

Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

QR kóðar fyrir starfandi  

„Gefnir verða út QR kóðar fyrir Grindvíkinga og þá sem starfa í bænum.  Gert er ráð fyrir því að þeir gildi til lengri tíma en verið hefur.

Lyklar að íbúum/húsum eru í vörslu viðbragðsaðila en talið er hentugt að halda óbreyttu fyrirkomulagi vegna eftirlits með lagnarkerfum í húsum eitthvað áfram.

Lokunarpóstar verða áfram á Grindavíkurvegi, Nesvegi og Suðurstrandarvegi.

Fjölmiðlafólki verður gert kleift að fara inn í bæinn með sama hætti og íbúar og starfsmenn fyrirtækja.  Sækja þarf um QR kóða,“ segir í tilkynningu. 

Mega gista heima 

Til að vekja athygli fólks á aðsteðjandi hættum hafa verið settir upp þrír almannavarnalúðrar eða sírenur í Grindavík.  Þá er einn slíkur við Bláa lónið og annar við orkuverið í Svartsengi.  

Lögreglustjóri á ekki von á því að margir Grindvíkingar kjósi að dvelja í bænum næturlangt.  Þeim er það heimilt en lögreglustjóri mælir ekki með því.

Dregið verður úr viðveru viðbragðsaðila í Grindavík en lögregla sinnir lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.

Gildir til 29. febrúar 

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.    Nýtt fyrirkomulag tekur gildi kl. 7 í fyrramálið, þriðjudaginn 20. febrúar 2024 en verður endurskoðað 29. febrúar 2024 að öllu óbreyttu.

Fréttin hefur verið uppfærð 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert