Telja viðbrögðin ekki viðunandi

Skúli Magnússon, umboðrmaður Alþingis.
Skúli Magnússon, umboðrmaður Alþingis. mbl.is/Eggert

Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir afstöðu félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins til þess hvort núverandi fyrirkomulag eða framkvæmd réttindagæslu fatlaðs fólks sé í samræmi við efni og markmið laga þar um.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef umboðsmanns Alþingis en þar er sagt að beiðni umboðsmanns sé send í kjölfar erindis frá Landssamtökunum Geðhjálp, Landssamtökunum Þroskahjálp og ÖBÍ réttindasamtökum þar sem áhyggjum var lýst af stöðunni. Þar kom fram að samtökin hefðu ítrekað komið ábendingum á framfæri við ráðuneytið en ekki talið viðbrögðin viðunandi.

„Telji ráðuneytið að brotalamir eða vandkvæði séu uppi við framkvæmd laganna óskar umboðsmaður eftir nánari skýringum á því svo og hvort þegar hafi verið gripið til aðgerða af því tilefni eða það sé fyrirhugað. Beðið er um svör fyrir 8. mars nk,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Bréf umboðsmanns til félags- og vinnumarkaðsráðuneytis

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert