Tobba Marinós ráðin upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins

Þorbjörg Marinósdóttir.
Þorbjörg Marinósdóttir. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Þorbjörg Marinósdóttir hefur verið ráðin nýr upplýsingafulltrúi menningar- og viðskiptaráðuneytisins. Hún hefur störf á næstu dögum.

Þorbjörg, betur þekkt sem Tobba, hefur mikla reynslu af fjölmiðlum, markaðsmálum og almannatengslum. Hún starfaði sem blaðamaður um árabil og á ferlinum hefur hún meðal annars ritstýrt DV og matarvef mbl.is.

Hún starfaði einnig forstöðukona markaðssviðs Skjás eins í fimm ár og hefur gefið út nokkrar bækur. Nú síðast stofnaði hún og rak fyrirtækið Granólabarinn og er eigandi fyrirtækisins Náttúrulega gott, að því er segir á vef ráðuneytisins.

Tobba útskrifaðist með BA í fjölmiðlafræði með áherslu á almannatengsl árið 2008 frá University of Derby. Árið 2018 lauk hún MPM gráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Starfið var auglýst laust til umsóknar 11. janúar sl. Alls bárust 43 umsóknir um starfið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert