Gert að greiða sekt sem granninn fékk niðurfellda

Nanna Gunnarsdóttir, íbúi við Nesveg í Vesturbæ Reykjavíkur, telur borgaryfirvöld …
Nanna Gunnarsdóttir, íbúi við Nesveg í Vesturbæ Reykjavíkur, telur borgaryfirvöld mismuna íbúum. Samsettt mynda/Ljósmyndir aðsendar

Íbúa við Nesveg í Vesturbæ Reykjavíkur verður gert að greiða sömu stöðusekt og nágranni hennar fékk niðurfellda eftir kvörtun sína til Bílastæðasjóðs. 

Íbúinn, Nanna Gunnarsdóttir, furðar sig á því að íbúar við götuna njóti ekki jafnræðis þegar kemur að niðurfellingu stöðubrota. Þegar bent var á það við borgina að nágranninn hefði fengið sektina niðurfellda var henni tjáð af fulltrúa borgarinnar að hann myndi ekki tjá sig um grannann og þar við sat. 

„Það sem mér gremst er það að við ættum öll að fá sektina niðurfellda. Það ætti eitt yfir alla að ganga. Þetta er spurning um jafnræði. Ég er alveg jafn dauð og alveg jafn blönk þó ég borgi þennan 15 þúsund kall en þetta snýst um jafnræði,“ segir Nanna.  

Vilja ekki aka á gangandi vegfarendur

Málið á rætur sínar að rekja til þess að síðla árs 2023 hóf borgin fyrirvaralaust að sekta íbúa á Nes­vegi. Þar er pláss fyr­ir bíla til að leggja báðum meg­in göt­unn­ar í akst­urs­stefnu. Eins hafa þeir íbú­ar sem eiga inn­keyrslu sunn­anmeg­in við göt­una lagt bíl sín­um þvers­um nærri göt­unni í stað þess að keyra alla leið inn í inn­keyrslu, yfir gang­stétt sem þar er. Bíll­inn er því ekki úti á götu og ekki inni á gang­stétt.

Bíllinn er því ekki úti á götu og ekki inni …
Bíllinn er því ekki úti á götu og ekki inni á gangstétt. Ljósmynd/Aðsend

Nanna er einn þeirra íbúa sem lagt hefur þannig. Hið sama hafa aðrir íbúar gert árum saman án þess að fá sekt fyrir stöðubrot. Það breyttist hins vegar án fyrirvara fyrir skemmstu. 

„Við erum búin að búa hérna síðan 1996. Aðalástæðan fyrir því að við leggjum svona er sú að við viljum ekki aka á gangandi vegfarendur,“ segir Nanna.

Gætu þá mokað snjóinn

Málið er ekki hið fyrsta af þessum toga sem sagt hefur verið frá á mbl.is. Þannig var sagt frá máli Ara Jóns Arason, íbúa við götuna, sem fékk sína sekt niðurfellda eftir að hann kvartaði undan því að hafa skyndilega verið sektaður þrátt fyrir að hafa lagt eins í átta ár.

Íbúar leggja ýmist í akstursstefnu eða þvert á innkeyrslu.
Íbúar leggja ýmist í akstursstefnu eða þvert á innkeyrslu. Ljósmynd/Aðsend

Í skýringum sem sendar voru Vigfúsi, manni Nönnu, þegar hann kærði niðurstöðu Bílastæðasjóðs segir m.a.:

„Svæðið þar sem fláinn er og fyrir framan hann, er á borgarlandi og skilgreinist sem umferðareyjur eða svipaðir staðir, innkeyrslur, eftir því sem við á. Þar má s.s. ekki leggja.“

Nanna segist ekki efast um að þetta sé rétt. En vísar aftur til jafnræðis í málinu og bætir við: 

„Ef þetta er borgarland. Þá getur borgin líka hirt þetta og mokað snjóinn,“ segir Nanna.  

Ólíkt Ara höfðu Nanna og Vigfús þegar greitt sektirnar sem þau vilja fá niðurfellda. Slíkt hafði Ari ekki gert. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert