Fyrirvari eldgoss gæti verið innan við 30 mínútur

Sjötta eldgosið á Reykjanesskaga á þremur árum hófst við Sundhnúkagíga …
Sjötta eldgosið á Reykjanesskaga á þremur árum hófst við Sundhnúkagíga 8. febrúar. mbl.is/Árni Sæberg

Um 5 milljónir rúmmetra af kviku hafa nú safnast saman undir Svartsengi, en í fyrri eldgosum á Sundhnúkagígaröðinni hafa líkur á eldgosi aukist þegar magnið hefur náð 8-13 milljón rúmmetrum. Þetta sýna nýir líkanreikningar Veðurstofunnar.

Sérfræðingar Veðurstofunnar meta það jafnframt svo að líkur eru á að eldgos geti hafist með mjög litlum fyrirvara, innan við 30 mínútum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar.

Miðað við niðurstöðu líkanreikningana mun kvikumagnið ná 8-13 milljón rúmmetrum í næstu viku ef kvikusöfnunin heldur áfram með sama hraða.

Grafið sýnir samanburð á magni af kviku sem safnast hefur …
Grafið sýnir samanburð á magni af kviku sem safnast hefur undir Svartsengi áður en kvika hleypur yfir í Sundhnúkagígaröðina. Magnið er fengið með líkanreikningum byggt á GPS gögnum og er háð óvissu. Mismiklar breytingar geta einnig sést á milli daga. Staða kvikusöfnunar 21. febrúar er merkt með rauðu. Fjólubláa línan sýnir magn kviku sem safnaðist áður en kvikugangurinn mikli sem liggur undir Grindavík myndaðist 10. nóvember. Graf/Veðurstofan

Vísindamenn meta það svo að ef til eldgoss kemur sé líklegast að kvikan leiti frá Svartsengi yfir í Sundhnúkagígaröðina og að gos komi upp á svæðinu milli Stóra-Skógfells og Hagafells. Merki um að kvika sé að brjóta sér leið upp á yfirborðið kæmu fram í skyndilegri, staðbundinni og ákafri smáskjálftavirkni. Sem fyrr segir gæti fyrirvarinn orðið mjög skammur, allt eftir því hvar á gígaröðinni kvika kemur upp.

Veðurstofan tekur þó fram að óvissa sé í þessari túlkun og að ekki sé hægt að fullyrða að þróunin verði eins og í síðustu gosum. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að kvika hlaupi frá Svartsengi og yfir í Sundhnúkagígaröðina án þess að til eldgoss komi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka