Loka síðasta sláturhúsinu á Austurlandi

Sláturhúsinu á Vopnafirði verður lokað.
Sláturhúsinu á Vopnafirði verður lokað. mbl.is/RAX

Sláturfélagi Vopnfirðinga hefur verið slitið og þar með verður síðasta sláturhúsinu á Austurlandi lokað. 

Það er Ríkisútvarpið sem greinir frá en ákvörðunin var tekin á hluthafafundi Sláturfélags Vopnfirðinga í gær. 

Skúli Þórðarson, framkvæmdastjóri félagsins, segir í samtali við Rúv að rekstur félagsins hafi verið erfiður undanfarin ár og að vaxtagreiðslur hafi hækkað um 20 milljónir á tveimur árum. Það sé um það bil tapið á síðasta ári og útlit fyrir að það verði ekki minna í ár. 

Því sé reksturinn að hans sögn einfaldlega ekki sjálfbær lengur, en hann kveðst þó hafa fulla trú á því að eignir félagsins dugi fyrir skuldum þess. 

Þá segir Axel Örn Sveinbjörnsson, oddviti sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps, vonbrigði að loka þurfi sláturhúsinu. Með því tapist útsvarstekjur auk þess sem breytingar verði á samfélaginu. 

Rúv greinir jafnframt frá því að lokunin feli í sér að bændur á Austurlandi þurfi nú að láta flytja fé sitt um enn lengri veg. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert