Óbyggðanefnd hafnaði beiðni ráðherra

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Óbyggðanefnd hafnaði í gær beiðni Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, um að nefndin endurskoðaði afstöðu sína varðandi svæði 12 og hæfi nýja málsmeðferð.

Um er að ræða þjóðlendu­mál­ið sem verið hef­ur til um­fjöll­un­ar að und­an­förnu. 

Þórdís Kolbrún lagði fram beiðni sína í bréfi hinn 16. febrúar. Það má kalla tilmæli því óbyggðanefnd heyrir ekki undir fjármála- og efnahagsráðuneytið heldur heyrir hún undir forsætisráðuneytið.

Nefndin tók málið fyrir í vikunni og telur að hún myndi ekki einfalda málsmeðferðina gagnvart hugsanlegum rétthöfum á svæði 12. Hugmynd ráðherrans gekk út á að málsmeðferðin yrði með viðbótarþrepi samkvæmt 10. grein laga um þjóðlendur.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert